Aaaarrrrrggggg..... þoli ekki að búa í blokk þar sem hjá okkur
eru svona sérstakir þvottadagar og við eigum semsagt fimmtudaga
nema ég snillingurinn gleymi alltaf hvaða dagar eru svo ég gleymi
semsagt að þvo á okkar dögum svo ég er alltaf að þvo á nóttinni og
það kemur óþægilega oft fyrir að ég gleymi að taka úr henni á
morgnanna... en allavega vona að þetta breytist þar sem við eigum
þvottavélina....
En allavega var víst að koma frá Kanada... Og það var frábært..
verslaði mér alveg helling. 18 boli og peysur, 3 gallabuxur,
svartar buxur, pils, 2 hælaskó, strigaskó, náttföt, náttslopp,
úlpu, vesti, jakka og jólagjafir og alveg bara helling.... held að
báðar töskurnar hafi verið um 35 kíló saman... við máttum vera með
40... svo þetta var bara gaman
Haha og ég varð tæknileg og
keypti mér I-pod... og er núna að læra að ná í tónlist 
Svo er ég bara búin að vera að vinna og djamma og einhvað....
Gerist eiginlega aldrei neitt mikið hjá mér...
En allavega ég fer í ennþá meira verkfall ef fólk skrifar ekki í
skoðanir er að fá nóg af því að fólk segir aldrei neitt... 
En er að fara að sofa góða nótt og skrifa svo fólk....